Details

Öruggt athvarf


Öruggt athvarf



von: Danielle Steel, Tor Jonsson

CHF 9.00

Verlag: Saga Egmont Hörbuch
Format: MP3 (in ZIP-Archiv)
Veröffentl.: 26.11.2024
ISBN/EAN: 9788727144856
Sprache: Isländisch

Dieses Hörbuch erhalten Sie ohne Kopierschutz.

Beschreibungen

Frá metsöluhöfundinum afkastamikla, Danielle Steel, kemur hér ógleymanleg saga um sorg og missi, en einnig þá von og hugrekki sem oftar en ekki fylgja.
Pip Mackenzie er ellefu ára gömul en hefur þrátt fyrir það upplifað mikinn harmleik sem þjakar hana og móður hennar. Í göngutúr með hundinn sinn við strandlengju San Francisco kynnist hún listmálara sem sér í henni sína eigin dóttur. Fljótlega hefst með þeim mikill vinskapur. Móðir Pip, Ophélie, er efins í fyrstu en fljótlega er málarinn Matt Bowles orðinn nátengdur þeim mæðgum og tekst þeim með vináttu og kærleika að lækna sárin sem hafa þjakað þau öll fram að þessu.
Hér kafar höfundurinn ofan í afleiðingar missis á fjölskyldur og kannar hvernig þær geta með sem bestu móti komist heilar frá honum.
Myndin Safe Harbour, sem kom út árið 2007, er byggð á bókinni.
Danielle Steel er mest seldi lifandi höfundur heims og hefur ritað yfir 200 bækur, þar með taldar skáldsögur, barnabækur, óskáldað efni, ljóðasafn og texta fyrir tónlist. Verk hennar hafa samtals selst í meira en milljarði eintaka um allan heim og hefur hvert þeirra komist á metsölulista á heimsvísu, þar með talið hjá New York Times, Wall Street Journal og The Sunday Times. Franska ríkisstjórnin veitti henni heiðursnafnbótina "Officier" við reglu lista og bókmennta árið 2002 og "Chevalier" við regluna "Legion d'Honneur" árið 2014. Á milli skrifa stundar Steel mannúðarstarfsemi af miklum hug og býr til skiptis í París og San Francisco. Danielle Steel er níu barna móðir.

Diese Produkte könnten Sie auch interessieren:

Himbeerliebe
Himbeerliebe
von: Karin Koenicke, Karin audioparadies, Désirée Singson, Daniel Bierich
ZIP ebook
CHF 14.00
Reisen bewegt
Reisen bewegt
von: Heidi Metzmeier, Jennifer Summer, Mari Hummingbird, Lilli Mixich, Selina Ritter, Stella Bur, Stella Litur
ZIP ebook
CHF 15.00
Emerald Secrets
Emerald Secrets
von: Rhonda Forrest, Olivia Beardsley
ZIP ebook
CHF 31.00